26.03.2008 23:33
Timburmennirnir.
Þær báru sig heldur illa margar kýrnar í dag, haltar og skakkar eftir klaufsnyrtinguna. Nokkrar voru bara illa haldnar.Trúlega hafa nokkrar tognað í sviftingunum og aðrar tekið snyrtinguna nærri sér . Þetta er greinilega fóðursparandi aðgerð(tímabundið) og leysir tankvandamálið í leiðinni , svona í bili. Ég lét svo hafa mig í það það trilla bygginu hans Ásgeirs og félaga á traktor inní Hólm . Þar sem traktorinn er alvöru var þetta nú ekkert skelfilegt, og byggið sem fór vestur yfir fjörð í þetta skipti var alveg úrvalsgott. (Engin hálmstrá). Við sem erum í byggþurrkuninni erum orðnir nokkuð naskir á gæðin af einstökum ökrum. Sem sagt allt gott, en misgott. Mér þótti það umhugsunarefni þegar kunningi minn og þrautreyndur byggræktandi sem keypti nokkur tonn af innfluttu byggi til að láta enda ná saman hjá sér, hafði aldrei gefið þvílíkt drasl áður!! (Þetta innskot er nú bara svona til fróðleiks.) Þessi Stykkishólmsferð varð hinsvegar til þess að rúningnum sem framkvæmast átti í dag var frestað, okkur bændunum til mikils léttis. Til að fullkomna hamingjuna er morgundagurinn og helgin fullbókuð og óhjákvæmilegt að fresta rúningum framyfir helgi. En dj. verður það nú samt gott þegar hann klárast.

Skrifað af svanur
25.03.2008 23:46
Snyrtipinnarnir.
Það hafðist af að klaufsnyrta kúahópinn ,fjörutíu og eitthvað og gekk bara vel. Kvöldmjaltirnar töfðust að vísu um klukkustund og þá átti eftir að gefa öllum pakkanum þannig að það var verið að til kl. 9.
Þetta var nú léttara en ég hafði reiknað með sérstaklega fyrir mig sem sá um að hafa tilbúna kú í tökubásnum um leið og klaufskurðarbásinn losnaði. Atli og Guðmundur stórsnillingur sáu um snyrtinguna. Atli sá um lagklaufirnar og að húkka böndunum af og á o.fl. en yfirsnyrtirinn sá um hitt. Það var ekki að spyrja að því að íslenska landnámskýrin var snögg að átta sig á því að þetta var sama kerfið og í mjaltabásnum þannig að ég hleypti bara næstu kú í biðröðinni í tökubásinn. (Þetta var svona næstum þannig.) Það var síðan lýsandi dæmi um gáfnafarið hjá þessari dásamlegu skepnu að þó þær í tökubásnum horfðu á meðferðina á stallsystrum sínum í klaufskurðarbásnum þá gengu þær hiklaust í hann á eftir þeim með bros á vör. Margt skrýtið í kýrhausnum.
Þetta var í fyrsta skipti frá landnámi að kýrnar í Dalsmynni eru snyrtar svona alvöru klaufsnyrtingu. Þrátt fyrir það var ástandið á klaufunum ekki skelfilegt nema á svona 4-5 kúm sem er auðvitað of mikið. Nú er spurningin hvort líði svona 1000 ár til næstu snyrtingar. Atli er með fullt af myndum af græjunni og framkvæmdinni á símanum svo ef einhver er áhugasamur um myndir þá er bara að gefa comment um það.. Og þar sem þetta var langur og erfiður dagur, lagði bóndinn lykkju á leið sína út í pottinn og kom við í kæliskápnum.
.

24.03.2008 21:16
Páskar, Porche og Lada Sport.
Þá eru páskarnir að baki og heldur bæst við massann á bóndanum sem eflaust kemur sér vel á erfiðu vori sem er alveg að bresta á. Og bara ekkert hægt að kvarta undan veðrinu þó aðeins sé farið að kólna aftur í augnablikinu. Það var svo einstaklega ánægjulegt að taka hér á móti Skrámi í dag en hann yfirgaf þennan sælureit fyrir cirka 3,5 árum +. Ég sá ekki betur en hann væri líka hæstánægður en það hefur nú kannski verið léttirinn að sleppa úr búrinu eftir fjögurra tíma ferðalag.
Í augnabliks aðgæsluleysi sleppti ég honum í þvottahúsið og 15 mín. seinna kom á daginn að hann hafði gengið mjög rösklega í það að merkja sér rækilega þennan endurheimta íverustað sinn þar sem hann eyddi fyrstu mán. ævinnar. Sem betur fer hefur dóttirin trúlega einhverntímann sagt sambýlismanninum hvað gerðist ef ég sleppti mér gjörsamlega, því hann fór umyrðalaust að reyna að skúra upp mestu merkingarnar enda málið skylt. Nú þarf síðan að gæta þess vandlega að Asi sleppi ekki inn í þvottahúsið næstu dagana því trúlega myndi hann ganga jafn rösklega í að yfirmerkja merkingarnar og bróðir hans. Ég er svo hundfúll út í eiganda Skráms að hafa ekki lagt vinnu í að temja hann betur, því þetta var snillingsefni. Mér finnst þetta svipað og eiga nýjan Porche, setja hann bakvið hús og þegar hann er notaður einu sinni í mán. þá er ekki ekið hraðar en á 40. Til að fyrirbyggja allan misskilning er rétt að taka fram að söluverðið á hvolpinum var ekki Porcheverð heldur svona Lödu Sport verð. Það er dálítið önugt fyrir þá sem eru virkilega að vanda sig við ræktunina á Border Colliernum að ef farið er uppfyrir Lödu prísinn snarminnkar eftirspurnin. Og Jói minn vertu alveg rólegur, ég ætla ekkert að minnast á hana Fiðlu.
Já svo er stefnt að því að klaufsnyrta kúahjörðina á morgun, ekki verður það skárra heldur en rúningurinn.

- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334