30.03.2008 22:00
Vestmannaeyjaferð.
Það var verið að ferma Eyjaprinsessuna hana Guðrúnu Svanlaugu í gær og allir sem vettlingi gátu valdið af Dalsmynnisliðinu mættu á staðinn. Atli var skilinn eftir heima til að halda búrekstrinum gangandi ásamt hundum og köttum. Sá hluti þjóðvegakerfisins sem tilheyrði Herjólfi var seinfarinn en afslappandi og allir við hestaheilsu í ferðalok.
Í Vestmannaeyjum fara fermingar fram á laugardegi enda eyjaskeggar (reyndar kalla þeir sig meginlandsbúa en við hin búum á eyju) á undan sinni samtíð. Og veislan var meiriháttar og stóð linnulítið frá hálf tvö og fram yfir miðnætti. Alla vega fyrir okkur sveitapakkið og nokkra aðra. Ég tók svo fyrri ferðina heim ásamt Munda(kl.átta) en hitt kom svo með fjögur ferjunni. Það var stafalogn og sól allan laugardaginn og reyndar í dag líka og þóttu okkur þetta firn mikil. Þegar við héldum því fram að það hlytu að vera tugir ára síðan hefði verið logn í Eyjum vorum við minnt á veðráttuna á Nesinu og var málið þar með dautt. Nú er svo bara að bíða eftir fermingunni hans Víðis, fótboltakappa og skáksnillings. Hún verðu væntanlega haldin eftir 5 ár og eins gott að hann gleymi ekki að bjóða okkur.

Skrifað af svanur
28.03.2008 10:41
Kjarabaráttan.
Fyrir okkur sem erum að dúlla okkur í mjólkurframleiðslunni var gríðarlega mikils virði að ná þessari hækkun á mjólkinni 1.apríl. Það var ekki minna virði að það skyldi verða svo til algjör sátt um málið og sýnir hversu þýðingarmikið er að tala hlutina rétt upp. Ekkert væl en staðreyndirnar á borðið. Fulltrúi ASÍ sem eðli málsins samkvæmt á að standa á bremsunni gat ekki verið vægari í mótstöðunni. Í þeirri umræðu hefði reyndar mátt benda á að bændurnir eru auðvitað með sínar neysluskuldir rétt eins og almenni borgarinn. Vaxtakjör búrekstursins hljóta hinsvegar að leita út í verðlagið eins og hjá öðrum fyrirtækjum. Á þeim tímapunkti sem farið var að velta fyrir sér niðurgreiðslum á áburðarverðinu steinhætti mér að lítast á blikuna. Slíkur gerningur myndi óhjákvæmilega hverfa til baka á einhverjum tíma hugsanlega án þess að neitt kæmi á móti. Áhyggjuefnið nú er hvernig rétta á af hækkanirna hjá sauðfjárbændunum. Þar er annað kerfi í gangi þar sem verðin stjórnast fyrst og fremst af svína og kjúklingakjötinu þó einhverjir vilja trúa öðru. Hér á bæ þar sem stunduð er styrkjalaus sauðfjárrækt er ljóst að meðlagsgreiðslurnar með dilkakjötsframleiðslunni munu aukast. Þá er bara að ydda blýantinn setja dæmið öðruvísi upp og fjölga liðunum sem laumað er yfir á mjólkurframleiðsluna, líta svo til himins og tala um lífsstíl eins og hitt rollufólkið.
Ég verð síðan á faraldsfæti um helgina og þar sem sjóferðin til Eyja leggst afar illa í mig og verulegar efasemdir uppi, um að ég lifi hana af bið ég ykkur vel að lifa og ganga hægt um gleðinnar dyr nú sem endranær.

27.03.2008 23:23
Púki.
Rétt í þann mund sem Óli Lokbrá var að koma mér inn í draumalöndin hrökk ég óþyrmilega upp við mikinn gauragang í minni heittelskuðu. Hún þaut framúr með miklum látum, út að glugganum og endurtók hvað eftir annað: Guð, hann datt í heita pottinn , hann drukknar,hvar er hann??
Ég hafði verið rammfastur fyrir, frá upphafi búskaparins að ekki yrði köttur á heimilinu.
Þetta var náttúrulega virt eins og aðrar grundvallarákvarðanir húsbóndans og þegar yngri dóttirin fékk það allt í einu á heilann að fá annaðhvort kött eða hamstur haggaðist gamli maðurinn ekki enda um algjört prinsippmál að ræða. Eldri dóttirinn sem var löngu sloppin undan ægivaldi föður síns fékk sér náttúrulega kött um leið og hún byrjaði búskapinn. Því miður (fyrir mig) reyndist kötturinn vera læða og ekki nóg með það heldur var hún með frjósamara móti. Þegar búið var að troða kettlingum inn á alla vini og óvini frá Skagafirði og suðurúr birtist dóttirin eitt sinn í föðurhúsunum og gaf yngri systur sinni ótótlegasta kettling sem ég hef nokkurn tíma augum litið, kolsvartanog kvenkyns í þokkabót. Varð nú fátt um varnir. Liðu nú fram stundir, kettlingsóbermið varð að myndarlegasta ketti og það var ákveðinn léttir að kyngreining systranna var lítils virði og hlaut sá svarti nafnið Púki. Það kom að því að Púki komst upp á að fara út að skoða heiminn og einhverra hluta vegna var það glugginn á hjónaherberginu sem var notaður fyrir útgöngudyr. Undir glugganum er hinsvegar heiti potturinn staðsettur og vegna sérvisku húsbóndans er engin ljósmengun leyfð við þann hluta hússins svo stjörnu og norðurljósaskoðun geti farið ótrufluð fram. Það sem olli síðan háttalagi húsfreyjunnar sem vikið er að hér að ofan var að Púki sem var á leið inn eftir kvöldgönguna hafði lent ofan í heita pottinum með miklu skvampi, hvæsi og formælingum. Til þess að auka á hugarvíl minnar heittelskuðu var skuggsýnt út að líta, yfirborð pottsins ókyrrt og virtist sem dökkur skuggi flökti um undir vatnsyfirborðinu. Eftir að húsbóndinn hafði unnið það sér til svefnfriðar að kveða uppúr með að að kötturinn væri ekki í pottinum lögðust hjónin til svefns dösuð eftir þessar geðshræringar allar. Það var síðan kl. 3.05 sem bóndinn rumskaði við aumkvunarvert mjálmið í Púka sem vildi láta opna gluggann betur svo inngangan gengi nú hnökralaust fyrir sig. Urðu fagnaðarfundir með okkur félögunum því bóndinn var farinn að hafa áhyggjur af blautum kettinum í rokinu og frostinu. Og nú eru bara 8 líf eftir hjá þeim svarta. (Það er alltof mikið).

Skrifað af Svanur
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334