03.04.2008 23:50
Boðsballið og Vestmanneyjar.
Var ekki einhver að tala um vor í lofti og stillur framundan?
Vorloftið í dag var í kaldara lagi og á töluverðum hraða hér á Nesinu. eða ákaflega súrefnisríkt eins og maður segir. Nú lætur maður sig hlakka til spennufallsins sem verður um miðnætti annað kvöld en þá verður haldin mikil hátíð á vegum sveitarfélagsins hér,matur, skemmtiatriði og ball. Þar sem við hjónin erum í skemmtinefndinni hefur allt verið á útopnu þessa vikuna og nær stressið væntanlega hámarki á morgun.
En það var farið til Eyja um síðustu helgi sem er alltaf dálítið sérstakt. Það er t.d. umhugsunarefni að til þess að vera örugg að komast með bílinn með sér á föstudeginum, þurfti að panta fyrir hann í janúar. Síðast þegar við fórum var flogið frá Bakka. Þá var líka sérstakt að skutlast þarna yfir á nokkrum mínútum. Eyjamenn binda greinilega vonir við Bakkahöfn (þar til verður borað,náttúrulega) en þá myndi ferjuferðunum fjölga verulega sem yrði heilmikil breyting.Og þeir taka því alltaf jafnilla þegar ég kalla þá útlendinga. En kíkið á myndirnar sem komnar eru inn frá ferðinni.

Skrifað af svanur
02.04.2008 00:33
Í góðum gír.
Það var lokið við rúninginn í dag. Nú liggur næst fyrir bólusetningar og ormalyfsgjöf á fénu. Þar sem allt er spólvitlaust að gera frestast það framyfir helgi. Nýheimta gimbrin er strax búin að læra átið en það hefur greinilega verið erfitt hjá henni í vetur. Engin hornahlaup og holdafarið slakt. Fóðurbreytingin og væntanlegur bati hjá henni er ekki góður svona á síðasta mánuði meðgöngunnar en erfitt að vinna úr því. Nú er norðanþræsingurinn sem hefur ríkt síðan fyrir helgi að ganga niður og vor í lofti. Ég óttast um kalskemmdir í nokkrum nýræktanna en vona þó það besta þar til annað sannast. Nú stendur yfir uppfærsla á 123.is og öll umgengni um heimasíðuna ákaflega erfið og svifasein. Þetta á hinsvegar allt að verða alveg rosalega gott um það er líkur.
Skrifað af svanur
31.03.2008 21:46
Stóri Langidalur og víkingasveitin.
Þar kom að því að austurbakkamenn brettu upp ermarnar og gerðu áhlaup í/á Langadalinn. Það var enginn annar en refaskyttan og snillingurinn hann Sveinbjörn á Hlíð sem skipulagði verkið og stjórnaði aðgerðum. Hann hefur eins og ég, haft pínulítinn grun um að kannski væri dalurinn ekki alveg fjárlaus, enda vandaði hann valið þegar kom að liðsaflanum. Fjórhjóladeildina skipuðu þeir Ásberg í Hraunholtum og Jakob í Mýrdal. Síðan tók hann í liðið Albert á Heggstöðum til að gulltryggja að skynsemin myndi nú ráða við endanlega skipulagningu og ekkert klúður yrði í leitinni.
Engum sögum fer af hundakosti þeirra félaga enda greinilega valið í fjórhjóladeildina með það í huga að ef yfirgefa þyrfti hjólin vegna brattlendis myndu smalarnir léttilega hafa í öllu tré við fálurnar ef einhverjar fyndust. Vandamálið við framhaldið er það, að þegar skipulagningin er í lagi og vel að verki staðið er ekkert skemmtilegt til að segja frá, nema þarna náðust 14 kindur og ekki seinna vænna því nú fer að grænka þarna í hlíðunum hvað líður.Ein þessar kinda var að ljúka sínum öðrum vetri í útilegu.
Og gimbrin sem ég heimti þarna mun væntanlega eiga eftir ca. mánuð í burð.
Að öllum líkindum verður Stóri Langidalur nú fjárlaus í alvöru í nokkrar vikur svo byrjar nýr rolluhringur með tilheyrandi vetrarsmalamennskum.

- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334