24.04.2008 23:45
Fréttir og heilsufar.
Burtfluttur sveitungi minn hringir stundum í mig og spyr frétta úr sveitinni. Það teygist oft úr þessum samtölum, ekki vegna þess að ég sé fréttafróður, heldur hefur vinur minn frá mörgu að segja. Meðal annars er það oftast hann sem getur sagt mér nýjustu fréttirnar úr sveitinni minni því hann fylgist miklu betur með mannlífinu hér, en ég.
Alltaf kemur að því í samtalinu að hann spyr mig um skepnuhöld og heilsufar búpeningsins svona yfirleitt. Nú í vetrarlok er nú kannski rétt að velta fyrir sér þessari spurningu. Og heilsufar búpeningsin hefur í heildina séð verið nokkuð gott.
Júgurbólgan sem er nú kannski stærsta hrelling fjósamannsins hefur komið miklu oftar í heimsókn en gott þykir. Nú er reyndar engin kýr á kúr en það mættu vera fleiri og lengri tímabil en sést hafa í vetur. Huggunin er sú að yfirleitt er þetta eitthvað sem er að taka sig upp, ekki um ný tilfelli að ræða. Súrdoðinn hefur verið nokkurnveginn til friðs. Þau tilfelli sem hafa komið upp tengjast einhverjum öðrum veikindum. Stærsti gallinn við lausagöngufjósið er það hvað flórarnir eru hálir og séu einhver veikindi í gangi geta tognað eða slitnað vöðvar þegar kýr reyna að standa upp og eru að renna til. Vöðvaslit eða slæm tognun hefur miklar skelfingar í för með sér. Alltaf er um einhver doðatilfelli að ræða oftast í kringum burðinn. Ein kúin er öðruhvoru að fá doða upp úr þurru þótt langt sé frá burði og virðist eldspræk þess á milli.
Og frjósemin virðist svona í heildina séð vera í þokkalegu lagi.
Þetta er allt rólegra í fénu. 1 gemlingurinn fórst úr fóðureitrun sem er orðin afar sjaldgæf hér og nýlega hafa tvær kindur látið fóstrum og spurning hvort framhald verður á því. Það virðast síðan vera að koma í ljós lamblausir gemlingar sem ekki er ótrúlegt að hafi misst fóstur snemma á meðgöngunni. Rollurnar eru hinsvegar orðnar of þungar og þá eykst hættan á kviðsliti og allskonar vandamálum.
O já það er basl þessi búskapur..

Skrifað af svanur
23.04.2008 23:31
Fréttir og mótmæli.
Ég hef alltaf verið forfallinn fréttafíkill. Það er nú ekki svo rosalega langt síðan menn bjuggu við örfáa fréttatíma á sólarhring á gufunni og Tíminn barst ekki í sveitina fyrr en mörgum dögum eftir útgáfuna. Þegar sjónvarpsfréttirnar urðu til var búskapurinn stilltur inn á fréttatímann sem var heilög stund. Nú eru breyttir tímar,glænýar fréttir dynja á manni allan sólarhringinn og þegar fréttastjóri RUV ákvað að á sínum tíma gefa skít í kúabændur og færa fréttatímann fram til kl. 19 gaf ég skít í sjónvarpsfréttirnar . Þó ég komi stundum inn um það leiti sem fréttirnar byrja er alveg undir hælinn lagt að ég nenni að horfa á þær. Alla tíð hef ég samt að upplifað það öðru hvoru að mér finnst fréttamennirnir ekki spyrja réttu spurninganna. Yfirstandandi bílstjóradeila er skólabókardæmi um það. Að mati flestra snýst hún um olíuverð og skatta sem hún gerir að hluta. Deilan snýst þó að mínu mati fyrst og fremst um reglugerðafarganið sem þessir aðilar búa við og framkvæmdina á því , þó gjörsamlega hafi mistekist að koma því til skila..Enginn minnist á að þessir mótmælendur vinna mest eftir útboðum. Þar ættu þeir að ná inn kostnaðarhækkunum en þeir lifa í hörðum heimi nú um stundir eftir góðærið.
Það virðist undantekningarlaust vera þannig þegar blýantsnagarar ráðuneytanna fara að snara EFTA ruglinu yfir á íslensku , að það er ekki nóg með að bætt sé við í reglugerðaruglinu sem eru nógu slæmt fyrir, heldur er hreinlega búið til eitthvað aukakjaftæði sem einhverjum ráðuneytisstjóra fellur vel í geð. Nú er til dæmis verið að breyta öllu dýralækniskerfinu hér með nákvæmlega þessum hætti. Það er ekki nóg með að þjónustan muni verða margfalt dýrari heldur mun dýralæknaþjónusta trúlega leggjast af í jaðarbyggðunum.
Ég vil svo þakka ykkur sem hafið verið að slæðast inná heimasíðuna mína veturinn, og vona að sumarið megi verða ykkur gott og gjöfult.

22.04.2008 23:36
Vorboðinn ljúfi.
Ég lét það nú ekki eftir mér að fara í kuldagallann þegar farið var að setja rúllur inn hjá kúnum eftir kvöldmatinn en norðanáttin var nöpur eftir hlýindin undanfarið. Það varð síðan minna úr skeljasandsakstri en til stóð. Beðið eftir frjótækni framundir hádegi og síðan kom upp skotferð í Borgó um kaffileytið. Það náðust þó að flytja um 80 - 100 tonn en verið er að setja 8 - 10 t.ha. í akrana og endurræktunina. Það var því geymt til morguns sem ljúka átti í dag sem er ekki ótítt að sögn húsfreyjunnar.
Restin af fræinu kom í dag og fyrsti áburðarfarmurinn á morgun en þetta er hluti af vorboðunum, þó þeir fiðruðu séu skemmtilegri og ódýrari. Nýræktirnar eru komnar með græna slikju sem verður hvanngræn um leið og gerir smádembu því nú er mykja á öllum túnum til að gefa þeim nú gott start fyrir sumarið. Og kalið sem ég var að angra mig á öðru hvoru í vetur virðist ekki hafa komið við á þessu svæði þetta árið.7-9-13 bank.
Sem sagt, eins og ég hef alltaf sagt tóm sæla og hamingja.(en pínu kalt.)

- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334