18.05.2008 05:18
Bannað að lofa veðurfarið!
Ég hefði betur sleppt því að lofa veðurfarið, því rigningin sem í kortunum var í besta hófi fór alveg úr böndunum. Völtunin sem var á algleymingi á ökrunum, var reyndar hætt vegna úrkomunnar áður en lofið var slegið inn á lyklaborðið en uppúr hádeginu í gær var sáningu og tætingu slegið á frest þar til þornaði um aftur. Já byggsáningunni lýkur ekki í dag eins og til stóð en til þess að þurfa ekki að eyða helginni í frí eða einhverja aðra vitleysu var farið að plægja upp restina af túnunum sem á að endurvinna svo hægt verði að sá rýgresinu með hraði í framhaldinu. Gærdagurinn var því með rólegra móti hjá mér. Erindi í Borgarfjörðinn var afgreitt og komið við í Bónus í leiðinni. Það sem varð til þess að tími fannst í það ferðalag var kaffiskortur sem brostinn var á í Dalsmynnisbúrinu. Maímánuður er mikill kaffimánuður hjá undirrituðum og nú er tryggt að kaffilaust verður ekki næstu dagana. Síðan var heimilið birgt upp af allskonar óhollustu sem er nauðsynleg á þessum árstíma og reyndar oftar þegar ég sé um innkaupin. Hinsvegar steingleymdi ég að koma við í Ríkinu sem fyllir mig áhyggjum af andlegu ástandi mín. Heimasætan er svo mætt í sveitina, Púka og öðrum til mikillar gleði og þegar búin að standa fyrstu vaktina.
Já nú þarf að upphugsa eitthvað nauðsynlegt erindi í kaupstaðinn svo hægt verði að versla það sem gleymdist.
Já nú þarf að upphugsa eitthvað nauðsynlegt erindi í kaupstaðinn svo hægt verði að versla það sem gleymdist.

Skrifað af svanur
17.05.2008 04:45
Vorblíðan og byggið.
Síðast þegar ég lofsöng veðrið brá svo við að komið var alvitlaust veður daginn eftir og næstu daga. Ég hef því ekki þorað að minnast á, að hér er búið að vera meiriháttar vorveður í marga daga og sér ekki fyrir endann á því. Í þessum skrifuðu orðum er lítils háttar rigning og lambféð sem út er komið var kuldalegt áðan, þó mér fyndist því engin vorkunn, enda hitinn um átta stig. Eitt gemlingslambið hafði trúlega legið eftir þegar hópurinn hafði fært sig um set og bar sig aumlega svo jarmurinn heyrðist heim að bæ í vorkyrrðinni, aleitt í þessum stóra hráslagalega heimi. Eftir að því var kippt í liðinn hljóðnaði allur jarmur utanhúss, fuglasöngurinn ekki. Byggsáningunni þokar vel áfram þessa dagana þó betur megi ef duga skal. Lokið er sáningu í Hrossholti, Þverá, Dalsmynni og Kolviðarnesi en eftir að ljúka seinni umferð í Söðulsholti og á Rauðkollstöðum. Tvær spildur í Hrútsholti sem Dalsmynni sf. er að endurrækta eru einnig eftir en annarri verður lokað með grasfræi ásamt byggi. Nú er bara að vona að hlýindin haldist, byggið nái sér fljótt á strik og uppskern líði ekki fyrir hversu seint er sáð.
Það sér allavega fyrir endann á byggdæminu en þá er eftir að sá grænfóðrinu hér á bæ, en það hefur setið á hakanum í þessum barningi. Sáð verður rýgresi í um 6 ha. bæði til beitar og sláttar. Já og svo fer tími áburðardreifingar að renna upp.
Og olíuverðið alltaf á uppleið.
Það sér allavega fyrir endann á byggdæminu en þá er eftir að sá grænfóðrinu hér á bæ, en það hefur setið á hakanum í þessum barningi. Sáð verður rýgresi í um 6 ha. bæði til beitar og sláttar. Já og svo fer tími áburðardreifingar að renna upp.
Og olíuverðið alltaf á uppleið.

Skrifað af svanur
16.05.2008 06:27
Lambfé út.
Já, fyrstu lambærnar fóru út í gær. Það var ekki vegna gróðurleysis eða veðurfars að það gerðist ekki fyrr, heldur er sólarhringurinn einfaldlega alltof stuttur til að koma hlutunum í framkvæmd. Árleg klaufsnyrting er gerð um leið og ærnar fara út og þó það sé einfalt mál að snyrta klaufirnar með dúkahnífnum eftir að við fórum að hafa féð á taði/hálmi er alltaf jafn önugt að þurfa að velta þessum flykkjum fram og til baka, sérstaklega þegar menn þykjast vera tæpir í bakinu. Þær biðu hinsvegar ekki boðanna og létu sig hverfa niður fyrir þjóðveg áður en húsbóndinn og hundarnir voru búnir að setja sig í stellingar til að fylgja þeim yfir veginn. Það er ekki alltaf einfalt mál með blikkdósirnar á 110 km hraða og ökumenn undir stýri sem í alltof mörgum tilvikum bera enga virðingu fyrir sauðkindinni og litlu lömbunum sem eru stundum vís með að taka til fótanna beint á bílana. Þar sem bæði stóru hliðin voru opin vegna mikillar dráttarvélaumferðar var leiðin greið í þetta sinn og þær höfðu sloppið niðurfyrir án vanhalda. Þar munu þær síðan halda til næstu 3-4 vikurnar en þá verður fjallið tilbúið fyrir þær með öllum sínum unaðssemdum. Gróðurinn er kominn svo vel á veg að trúlega þýðir ekki að setja heyrúllu niðurfyrir. Hún yrði einfaldlega látin óétin. Sauðburðurinn er enn í lága gírnum. Gemlingarnir eru þó flestir bornir og um 10 urðu tvílemdir sem er ekki gott. Nokkrir þeirra munu fá/verða að ganga með báðum lömbunum í sumar enda eru þeir óvanalega stórir og þroskamiklir þetta árið og erfitt um vik að venja undan þeim, því það er líka dálítið um þrílembur í eldri hópnum.
Það er svo náttúrulega afar slæmt vandamál á sauðfjárbúi, ef ekki finnst tími til að setja féð út á grænu grösin. Eins gott að það vandamál leysist fyrir haustið.
Það er svo náttúrulega afar slæmt vandamál á sauðfjárbúi, ef ekki finnst tími til að setja féð út á grænu grösin. Eins gott að það vandamál leysist fyrir haustið.

Skrifað af svanur
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334