17.07.2008 20:36
Nýræktin

Við grasfræsáninguna er gamla sáðvélin tekin fram. Hún er sérhönnuð til línræktar og er nærri helmingi styttra milli frærásanna á henni en hefðbundnu sáðvélunum sem þýðir að akurinn lokast mun betur.
Þegar ákveðið var að einbeita sér að mjólkurframleiðslunni lá fyrir að stórbæta þyrfti gróðufarið á túnunum. Það eru þessvegna teknir í endurræktun 4-8 ha. á ári. Þetta fellur vel að byggræktuninni. Við höfum síðan sáð minnkuðum skammti af byggi með grasfræinu þegar akrinum hefur verið lokað til að fá einhverja uppskeru sáningsárið.
Það er hinsvegar dálítið lotterí, því hætta er á skemmdum í nýræktinni ef blautt er um á uppskerutímanum eða ef ekki næst að hreinsa burtu hálminn. Í vor tók síðan yngri bóndinn af skarið með það að framvegis yrði grasfræinu sáð einu og sér. Gærdagurinn (fyrriparturinn)var því tekinn í að loka rúmum fimm ha. sem búið var að finisera til. Það var mikill munur á að vinna þetta núna eða þegar flotið var um þetta í vor, ýmist á plógstrengjunum eða lýginni. Nýgresið á síðan að vera komið vel upp fyrir veturinn og skila góðri uppskeru næsta sumar.(Ef þetta kelur ekki allt saman.)
Það á svo að reyna að ljúka plöstun á hrossaheyinu á morgun ef ekki verður of hvasst.
Skrifað af svanur
15.07.2008 23:30
Hey og hrossahey.

Stund milli stríða.
Það er bara notuð merkjavara þegar verið er að sýsla eitthvað í kringum hestamiðstöðina.
( Ferguson og Pöttinger).

Í þetta sinn klikkuðu veðurfræðingarnir ekki og það var kominn blásandi þurrkur um hádegi. Við feðgarnir vorum hinsvegar í allskonar slugsi framyfir miðjan dag en þá var líka tekið á því. Dótið tengt og farið að rífa niður . Áður en lauk lágu um 18 ha. með misúrsérsprottnu (flott orð) grasi. Ef verkunin tekst vel verða samt hrossabændurnir hæstánægðir, enda þurfa hrossin hvorki að framleiða mjólk eða búa sig undir kjötframleiðslu í vetur. Vonandi þornar þetta svo hratt og vel, því þessu dæmi þarf að loka á fimmtudag ef guð lofar.( Amen.)
Mér er svo alveg hætt að lítast á hvað þetta sumar þýtur áfram.

Skrifað af svanur
14.07.2008 23:39
Reykjavíkin og rigningin.

Síðasti áningarstaðurinn í Suðursveit við Jökulsárlónið.
Það var brunað í bæinn í dag . Erindin voru nokkur en aðalerindið var að kaupa þvottavél í mjólkurhúsið.( mjaltaklútana.) Þó þvottavélin þar væri ung að árum var hún steinhætt að vera til friðs og umdeilanleg fjárfesting að kaupa viðgerð á tæki sem kostar ekki meira (virðist vera einnota dót.). Þó umhverfið sé trúlega ekki þvottavélavænt og erfiður þvottur að þvo 40 + þvottaklúta var ákveðið að kaupa "alvörumerki" núna og vita hvort það entist lengur.
Og þessi rigning sem við erum að fá er virkilega fín , ekkert of mikil og svo lítur út fyrir að seinnipartinn á morgun bresti á þurrkur sem hentar vel fyrir þá sem eiga eftir af fyrri slættinum. Líklega verður Hestamiðstöðvareigandinn æstur upp í að láta slá allt sitt í Hrossholti og Söðulsholti og spurning hvort hér verið tekinn rýgresis/byggakurinn en í vor gerðum við tilraun til að sá saman rýgresi og byggi til sláttar. Ætlunin er að slá akurinn a.m.k. tvisar og nú er hann að komast í sláttuhæft ástand. En við viljum vera öruggir með 3-4 daga þurrk á rýgresið því það verður rúllað beint úr skárunum.
Svo er plönuð hestaferð um helgin.

Skrifað af svanur
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334