20.10.2015 20:16
" Tryppareksturinn " með tamninga og uppeldishópinn.
Tamninga og uppeldishópurinn leggur upp í um 2km " trypparekstur " .
Fín hreyfing fyrir hópinn og smá uppeldi í leiðinni.
Gjarnan tekinn svona rúntur 4 - 5 sinnum í viku.

Skrifað af svanur
18.10.2015 21:11
Tamningar á fullu .
Nú er maður kominn á kaf í tamningarnar .

Það er til marks um pressuna að það var farið með hunda í kindur 8 sinnum einn daginn í grenjandi rigningu.


Ronja 15 mán. Slóð á myndband .
Nú er verið að rembast við að klára 3 ( seldir með 1 mán. tamningu) úr gotinu undan Ronju og Tinna frá Brautartungu.
Það er að koma býsna vel út.
Annar þeirra sem ég hélt sjálfur eftir er seldur, kominn vel af stað, en hinn fer trúlega mikið taminn næsta sumar.
Sá sjötti bíður eftir að komast í námið
Pressan á mér er vegna þess að það er ómetanlegt að hafa aðgang að ferskum kindum með þá sem er komnir jafnlangt í tamningunni og þau sem ég er að vinna í akkúrat núna.
Ferskum kindum sem hægt er að ganga að við mismunandi aðstæður og misstórum hópum á túnunum. Ómetanlegt þegar verið er að kenna og þjálfa úthlaup og allskonar sem upp kemur við þessar aðstæður.
Þetta er semsagt kapphlaup við veturinn og hvenær féð verður tekið á hús og rúið.
Þessir 3 áttu að fá mánaðartamningu til að byrja með og verða komnir mjög vel af stað eftir hana.
Eiga að verða nothæfir í smalið eftir að búið verður að kenna eigendunum á þá.
En það er samt mikið sem þeir geta lært í viðbót og það að slípast í vinnu og verða eitt með eigandanum í smalamennskunni er nú nokkurra ára ferli . 

Hér er myndband sem sýnir t,d, hvernig skipun sem er fljótkennd á síðari tamningastigum nýtist í smalinu.
Skipun sem ég þarf ótrúlega oft að nota.
( smella á myndina)
Horfa á myndband
Skrifað af svanur
14.10.2015 21:29
Sauðfjárárhringnum lokað.
Það er alltaf sama spennufallið þegar maður horfir á eftir fjárflutningabílnum með lömbin í Hvíta húsið á Hvammstanga.

Heimturnar hafa verið með allra , allra besta móti. Allt fullorðið skilað sér og vantar ekki nema tvo lömb af fjalli.
Það voru ekki miklar væntingar um að met yrðu slegin í fallþunga eða gæðum þetta árið. að vísu sannfæring um að þetta yrði betra en í fyrra sem var botnár hjá okkur.
Það gekk eftir.
Stefnan var sett á að fallþunginn yrði yfir 18 kg. og gerðin yfir 10 .

Þetta gekk hvorugt eftir.

Meðalvigt var 17.98 . - gerðin 9.8 og fita 6.83 sem telst magurt á Dalsmynnskan mælikvarða

Lífgimbrahópurinn uppfyllti nokkurnveginn þær kröfur sem hér eru gerðar af hógværð og lítillæti.
Nú er Saumur inni í ræktuninni og svo heppilega vildi til að annar ásetningshrúturinn er undan honum.

Spurning hvernig honum vegnar á komandi hrútasýningu á föstudagskvöldið.
Það er samt engin stefna eða markmið í gangi, í því máli.

Þar sem næstu blogg munu verða helguð fjárhundum með ýmsum hætti er ágætt að æfa sig með einu myndskeiði af innrekstri fjár.
Hér er þetta rólegt dól og miklu minna fjör heldur en fyrir þó nokkrum árum þegar blóðið rann hratt og örugglega í mannskapnum og raddböndin fengu góða æfingu.
Já, og þá þurfti svo hellings mannskap til að hægt væri að koma safni í rétt og hús.
Miklu meira fjör í því.
Skrifað af svanur
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334