20.01.2009 10:58
Nýja lúkkið á Framsókn.
Miðað við hvað heimsóknir og flettingar döluðu á síðunni minni um helgina, verð ég að ætla að hér séu sem fastagestir, þó nokkrir gegnheilir og góðir framsóknarmenn.
Það er gott mál.
Þó ég hafi hrokkið fyrir borð af framsóknarskútunni fyrir margt löngu var það ekki grasrótinni þar að kenna.
Ekki verður annað séð en þau ráð sem ég hef gefið grasrótum allra flokka að nú þurfi að skipta hraustlega út fyrir fersku liði, hafi skilað sér vel inn á þing framsóknarmanna.
Mínar bestu hamningjuóskir með það framsóknarmenn.
Hvort það að taka úr framvarðarsveitinni, liðið sem fór út af sporinu með bankana og afhenti þá vinum og vandamönnum í stað fjöldans eins og lagt var upp með, dugar til að flokkurinn nái vopnum sínum á ný kemur svo í ljós.
Í dag eru menn kampakátir með að hafa samþykkt slík afarskilyrði fyrir ESB aðildarviðræðum að útilokað verði að ná nokkrum samningum. Því miður er staðreyndin hinsvegar sú, að þegar menn setjast að samningum, þá kemur ósjálfrátt að því að samningsaðilar fá allt aðra sýn á hlutina. Aðalatriðin verða að aukaatriðum og öfugt, og þeir sem settust að samningum með því hugarfari að semja ekki. eru allt í einu komnir með allt annað hugarfar.
Ég sé fyrir mér að þegar Solla og Sigmundur standa uppfrá þeim samningum og hún gerir síðan frömmurunum grein fyrir því að nú sé annaðhvort að stökkva eða slíta stjórnarsamstarfinu þá??
Ja, það hefur nú lengi fylgt framsóknarmönnum að þykja vænt um ráðherrastólana sína.
Og þeir eru því miður ekki einir um það.
Ef nýju framsókn tækist að slíta rækilega öll tengsl við bankasukkliðið, búa til trúverðuga leið til að tengja krónuna öðrum gjaldmiðli og stigi enn betur ofan á ESB umræðuna myndi hún trúlega braggast vel eftir harðan vetur.
En þetta er allavega góð tilraun í baráttunni.

19.01.2009 10:08
Prúttið
Fyrir margt löngu trúði ég því að verðmiðinn á dótinu sem, mig langaði í væri óumbreytanlegur og nú væri annaðhvort að hrökkva eða stökkva.
Það er talsvert síðan ég áttaði mig á því að nú gengur allt út á afslætti og prútt. Það kemur skemmtilega á óvart að þegar ég kvarta yfir verðinu á varahlutnum í bílinn er mér umsvifalaust boðinn 5 - 10 % afsl. Ekkert alvörudót er keypt nema að afstöðnu miklu prútti og samningum og það er bara eitt símtal við þjónustufulltrúa hjá stóru byggingarvöruverslunum. Þá fæ ég umsvifalaust afslátt af öllum viðskiftum um 10 - 20 % eftir því hvað ég lofa miklu umfangi.
Fyrir nokkrum árum tókum við okkur saman nokkrir bændur, skoðuðum eldneytiskaup nýliðins árs og óskuðum síðan eftir því við olíuumboðin að fá tilboð í a.m.k. þetta magn + afsláttarprósentu á öllum þjónustuvörum, ásamt ákveðnu tankrými,rafmagnsdælum með mæli o.sv.frv.. Það verður að segjast eins og er að þetta vakti ekki mikla hrifningu á þeim vígstöðvum og það var ekki nema eitt þeirra sem kom með alvörutilboð.
Það var samið við það til þriggja ára. Þegar sá samningur rann út var enn farið í útboð á pakkanum sem var orðinn töluvert stærri í lítratali og miklu, miklu hærri í krónum.
Nú var komið annað hljóð í strokkinn og öll skiluðu inn alvörutilboðum. Þau voru nokkuð misvísandi en eftir mikla yfirlegu og smáblýantsydd var samningurinn endurnýjaður til þriggja ára.
Vandamálið við þetta prútt allt saman er trúlega það, að listaverðið er spennt upp til að geta veitt afslætti, rétt eins og á yfirstandandi útsölum. Og þeir sem vara sig ekki á þessu eru í slæmum málum.
En ég prútta ekki í Bónus, enda eiga feðgarnir dálítið bágt núna.

16.01.2009 23:08
Ömmustelpan og tvíkelfingarnir.
Enn einn föstudaginn klikkaði afinn á afadeginum.
Amman bjargaði því sem bjargað varð eftir hádegi og þar sem afinn sveikst líka um að mæta í fjós var ömmustelpan látin hjálpa til við mjaltirnar.
Og .þá byrjuðu ævintýrin.
Huppa tók upp á því að eiga sæta kvígu svo litla manneskjan fengi að fylgjast með hvernig lífið gengur fyrir sig.
Já, hann er dálítið blautur úr maganum á mömmu sinni.
Þetta var mikil upplifun og þegar maður var rétt búinn að ná andanum yfir þessum býsnum
þá hélt ævintýrið bara áfram.
Það var nefnilega annar kálfur og hann kom meir að segja afturábak í heiminn.
Þetta var nú strákur og hann var nú bara enn blautari en hinn.
Það var mikið ó ó á henni ömmu og eins gott fyrir hana að fara strax að þvo sér.
Já það er sko miklu skemmtilegra þegar að afi er ekki heima.
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334