13.02.2009 09:38
Að þreyja þorrann.
Þorrinn fer oft mjúkum höndum um undirritaðan. Þetta er tími rólegheitanna eftir erilsamt sumar og haust. Hækkandi sólin fer ákaflega vel í mann, stillurnar undanfarið líka. Á þessum tíma leggur maður mat á kalhættuna í túnunum og ef engin svellalög eru á þessum tíma verður kalhættan lítil eða engin þetta árið. Nú er útlitið mjög gott hvað þetta varðar og jörðin klakalítil til að kæta mann enn frekar.
Einhverra hluta vegna hef ég oft undir höndum fjárhundsefni sem þarfnast kennslu og er svo nú.
Þessar verða í námi í vetur. Snilld frá Dýrfinnustöðum( eins og hálfs árs) nær og Dáð frá Móskógum
( 8 mán ) fjær. Byrjendum í tamningum er bent á upplýsingarsafnið hægra megin á forsíðunni hér. Þar er síða " Hundatamningar," þar sem hægt er að fylgjast með tamningunni á Dáð, í máli og myndum.
Ef veður leyfir er gjarnan tekinn tími í það á þessum tíma og frameftir apríl. Síðan er frí í hundatamningum fram í júlí.
Langþráður gripabíll kom svo hér í gær og tók með sér 6 fullorðna gripi og 8 smákálfa.
Það er SKVH sem sér um þessa hlið rekstrarins og hafa þessi viðskipti gengið ákaflega vel, þar til í vetur að allt í einu var gamla biðlistakerfið komið á, undirrituðum til mikillar skelfingar.
Nú eru þeir farnir að úrbeina og vinna þetta sjálfir að hluta. Það er síðan að skila sér í aukinni afsetningu og jákvæðari bændum.
Já, svo verður þorrinn blótaður hraustlega á laugardagskvöldið.
11.02.2009 09:27
Ólafur ,Davíð og hundatamningar.
Stundum kemur að máli við mig fólk sem heldur að ég sé góður í að temja hunda.
Þar sem mér finnst frábært ef einhver heldur að ég sé góður í einhverju, segi ég þessu fólki yfirleitt eitthvað gáfulegt um hundatamningar.
Ég legg alltaf ofuráherslu á, að ef tamningin eigi að ganga verði þjálfarinn að vera afdráttarlaus leiðtogi í augum hundsins. Það þarf síðan margt til, svo hundurinn líti á mann sem leiðtoga sinn en tvennt það mikilvægasta er að hundurinn beri takmarkalausa virðingu fyrir húsbóndanum og treysti honum fullkomlega..
Á þessum síðustu og verstu tímum hvarflar stundum að mér að nú sé eins og ógæfu Íslands verði allt að vopni.
Okkar ástkæri og alþýðlegi forseti stendur fyrir hverri bombunni á fætur annarri og sér ekki fyrir endann á því. Það að taka fréttamannafund í að útskýra fyrir þjóðinni hvað Jóhanna og Steingrímur ættu að gera að lokinni stjórnarmyndun var í besta falli barnalegt. Annar fréttamannafundur var tekinn í langar rökræður um túlkun á stjórnarskrárákvæðum.
Það toppar þó ekkert það, þegar kemur í ljós að forsetinn býður til sín í kvöldverðarveislu ýmsum erlendum blaðamönnum( einum í einu) og setur ekki þau skilyrði sem þjóðhöfðingar setja undantekningarlaust fyrir slíkum viðtölum, að embættið fari yfir viðtalið fyrir birtingu.
Sá sem síðast hlotnaðist þessi heiður hefur greinilega ekki þolað einnar og hálfrar stundar einræðuna. Við verðum nú að hafa skilning á því.
Hinn ástkæri leiðtoginn okkar til margra ára, sá sem leiddi okkur af mikilli sannfæringu breiða veginn til glötunar er svo annar kapítuli út af fyrir sig. Hann hefur sömleiðis magnað óáranina með
allskonar upphrópunum og fjölmiðlafári og er fjarri því, að þar grilli í lokin á ævintýrinu.
Nú er hann kominn í alvöru stríð og ljóst að hann ætlar að hámarka það tjón sem hann getur mögulega valdið þessari ríkisstjórn, skrílsins og kommúnistanna. Það skiptir engu máli í þeim leik hvernig fer fyrir okkur vesalingunum sem berum auðvitað alla ábyrgð á völdum þessarra snillinga og borgum fyrir grínið.
Ég verð að viðurkenna það, að ég óttast dálítið eitthvað sem hann er með uppi í ermunum.
Ég hef samt engar áhyggjur af margræddum starfslokasamningum því þeir Davíð og frammararnir
voru búnir að gulltryggja svo eftirlaunapakkann sinn, að það toppa það engir starfslokasamningar.
Já, ég held að þeir Ólafur og Davíð hefðu ekki orðið góðir í að temja hunda.

09.02.2009 09:29
Fjöllin og fjórhjólin.
Mér finnst gott að hafa fjöllin nálægt mér.
Þó að það kosti trúlega nokkra metra í auknum vindstyrk öðru hvoru.
Það róar mig ótrúlega niður á slæmum degi að virða fjallahringinn fyrir mér og rifja upp góðar stundir .
Kannski er þetta vegna þess að ég er alin upp við fjöllin og þekki ekki annað. Kannski eru það genin úr Húnaþingi , Svarfaðadalnum og héðan af nesinu sem gera mig að þessu viðundri sem ég er en hvað um það.

Svartafjall nær, Skyrtunna fjær
Mér finnst ekki nóg að hafa fjöllin fyrir augunum og finna fyrir þeim þegar hvessir. Til að halda geðheilsunni þó ekki slakari en hún er, verð ég að komast á fjöll öðruhvoru.
Næstu mánuðina verða það fjórhjól og sleðar sem bjarga málununum. Í júní er svo mikil törn í grenjavinnslu og girðingarvinnu. Haustinu fylgja svo miklar ferðir um fjöllin við að ná fénu til byggða.
Þetta er ekki alltaf tóm sæla því þegar þokan og úrkoman læðist yfir í grenjavinnslunni fylgir því engin sælutilfinning. Nema fyrir rebbann sem getur óhræddur snuðrað í kringum mig í dauðafæri án þess að hafa áhyggjur.
Og leitirnar eru orðnar með öðru sniði nú, en þegar ég þrammaði um í eftirleitunum í allskonar færi og stóð varla í lappirnar þegar heim var komið. Þetta var þó á þeim árunum sem maður var þindarlaus og úthaldið eftir því. Á þessum árum lærði maður líka að veðurfarið gat verið talsvert annað eftir að komið var uppfyrir ákveðna hæðarlínu.

Hesturinn er alltaf flottur, sama hvaða hlið snýr að manni.
Það var svo lagt á fjórhjólin í gær því snjósleðafærið er ákaflega dapurt þennan veturinn.

Fjórhjólafærið var heldur ekki til að hrópa húrra fyrir og versnaði eftir því sem ofar í fjallgarðinn kom.

Þegar mikið gengur á lætur oft eitthvað undan og það tapaðist loft úr dekki. Samstilltar björgunaraðgerðir skiluðu þó árangri og það náðist loftdæla á staðinn.
Það er svo ákaflega þýðingarmikið að umgangast fjöllin með þeirri virðingu sem þeim ber.
Því þegar þau bregða á leik með veðurguðunum er miskunnarleysið algjört.

- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334