16.08.2010 22:53
Löggan . Ekki árennilegir!
Kannski verið að bera saman bækur sínar, og nú á aldeilis að hægja á umferðinni neðan Dalsmynnis.

Tangarsóknin ákveðin, en sem betur fer verður sífellt sjaldgæfara að bláu ljósin sjáist við stöðvaðar bifreiðar vegna hraðaksturs.
14.08.2010 21:42
Stressdagur að baki.
Þó ég verði sífellt rólegri með aldrinum og reyni að forðast stressið af alefli koma alltaf slæmir dagar öðruhvoru.
Gærdagurinn var ekki alslæmur en afleitur á köflum.
Ég átti tíma í bænum kl. 12.15 og fund á Selfossi kl 2.
Síðan varð ég að ná í BM Vallá í Fornalundi fyrir lokun kl 6, og þetta leit bara allt vel út um morguninn.
Á leiðinni í bæinn átti ég reyndar að koma við á Skaganum og taka pakka á Selfoss og þá byrjuðu vandræðin.
Þegar til kom þurfti ég að ræsa út mann til að ná pakkanum og þetta tók tíma og það var stress að ná í bæinn kl 12.15.
Þá hafði eitthvað komið uppá þar og ég þurfti að bíða til kl eitt.
Fundartíminn stressaði mig þó ekki mikið því þar gerðist ekkert fyrr en ég og félagi minn, sem fékk far úr bænum, mættum.
Fundurinn dróst hinsvegar á langinn og í stað þess að enda rúmlega 4 lauk honum ekki fyrr en vel að ganga 6 og nú var þröngt á að ná í Vallá fyrir lokun.
Þar þurfti ég að ná út kantsteinum í hellulögn en miklar planframkvæmdir standa yfir í Dalsmynni.
Ég er orðinn mikill sérfræðingur í hellulögnum en ætla pottþétt ekki að leggja það fyrir mig.
Til stóð að loka því máli um helgina og nokkra viðbótarsteina bráðvantaði til þess.
Þetta stóð glöggt og litlu munaði að rautt ljós á Höfðabakkanum rústaði málinu.
Tvær mín. yfir 6 slapp ég inn í afgreiðsluna og var svo stálheppinn að þarna var alvöru afgreiðslumaður sem seldi mér umsvifalaust 20 kantsteina þrátt fyrir að vera hættur þennan föstudag ( og meira að segja 13. mánaðarins).
Steinarnir komnir á sinn stað og á morgun verður væntanlega fyllt að þeim og hellulagt.
Það verður ekki slæmt mál þegar sést fyrir endann á plandæmunum.
Einn gutti var eftir á planinu sem reddaði mér steinunum og nú var næsta mál að komast í einhverja búllu til að næra mig.
En uppistaða í neyslu dagsins síðan morgunmat lauk var svart kaffi.
Og það var enn meiri léttir en vanalega þegar ég var kominn fyrir Kollafjörðinn á leið í stresslausa sveitina.
Og ein kennslustund með frábært fjárhundsefni kom mér aftur í rétta gírinn.
08.08.2010 19:59
Fjárhundanámskeið, íslandsmet, gigtartöflur og Wiský frá síðustu öld.
Þar sem við félagarnir eru með allra jákvæðustu mönnum og eigum oftast erfitt að neita nokkrum hlut hefði getað farið illa.
Það vildi okkur til happs að fyrirvarinn var stuttur, hestamót o.fl. settu strik í reikninginn en síðast en ekki síst týndist ( trúlega) miði með þó nokkrum símanúmerum ýmissa áhugasamra um námskeið sem hafa hringt á liðnum misserum.
Og ég hef náttúrulega enga samúð með þeim sem ekki lesa bloggið mitt daglega og missa því af þýðingarmiklum auglýsingum.
Það mættu síðan 16 hundar og þátttakendur á námskeiðið og sumir voru með áhangendur með sér svo það var mannmargt í Mýrdal um helgina.
Áslaug fékk aldeilis að taka til hendinni með standandi stórveislu alla helgina.

Frá v. Styrmir og Klonni frá Gufudal. Villi og Terrý f. Hrossholti. Dagbjartur og Spóla frá Hrísum. Alexander og Pjakkur f.Grundarfirði.Dóri og Píla frá Kvíabekk.Birna og Rós f. Staðarhúsum. Brynjar og Patti f. Ystu görðum.ásbjörn og Bolla f. Móskógum. Dóra Erla og Snælda f.Snartarstöðum. Gísli staðar og námskeiðshaldari. Dísa og Píla f. Gullberastöðum. Ásberg og Moli f. Tálknafirði. Elín og Knútur ´. Snæbýli. Liggjandi . Bjössi og Lóa f. Hraðastöðum. ( 3 vantar.)
Við Gísli vorum hæstánægðir með útkomuna á þessari frumraun á öllu Íslandi (trúlega) að halda 16 manna smalahundanámskeið með tveim leiðbeinendum.

Týra f. Dalsmynni var eins og ég lofaði kaupendunum, auðveld í tamningu, góð á heimili og notadrjúgur smali en enginn ofurhundur.
Seinni daginn var boðið uppá 4 hólf með kindum. Þrjú með tömdum kindum og eitt fyrir meira tömdu hundana með hóp af fé úr hlíðinni. Leiðbeinendurnir röltu á milli og þetta svínvirkaði.
(algjörlega hlutlaust álit.


Kominn slaki í liðið seinnipart sunnudags.
Fyrir okkur námskeiðshaldarana var ánægjulegast að sjá breytinguna á ótömdu hundunum þessa 2 daga og nú verða eigendurnir að standa sig í framhaldinu.

Huntawayinn( rekstrarhundar) hennar Dóru Erlu, Snælda frá Snartarstöðum var áhugavert eintak sem hafði áhuga á að hringfara féð, harðákveðin en ekki mjög þungt haldin af hlýðnihvötinni. áhugavert smaladýr þegar hún er búin að átta sig á hver á að ráða.

Ásbjörn og Bolla f. Móskógum í lokaæfingunni.

Villi og Terrý ásamt Laxárdalsbændum. Jói fékk sérstakt hraðnámskeið á sunnudagsmorgun nýlentur úr 5 daga reið á Hornströndum með Svaðilfara og þurfti að vera mættur aftur heim um 3 leytið.

Staðar og námskeiðshaldari í námskeiðslok, þreyttur en hæstánægður með helgina horfir á lokaæfinguna hjá verðandi stórsmala.
Og þetta var líka erfitt fyrir okkur gömlu félagana Vask og undirritaðan.
En þegar Vaskur var kominn með gigtartöfluna sína og ég í pottinn með klassawiskýið frá síðustu öld brosti lífið við okkur félögunum sem aldrei fyrr.

Myndir í abúmi smella hér
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334