07.12.2010 23:17
Mjólkurkvótauppboðið. " Fullkomnun fáránleikans."
Hann sagðist hafa bundið miklar vonir við nýtt kerfi í mjólkurkvótaviðskiptum enda löngu hættur að reyna að kaupa framleiðslurétt gegnum það gamla.( Ætla ekki að hafa eftir það sem við vorum sammála um þar.)
Nú hugsaði hann sér gott til glóðarinnar enda búinn að leggja fyrir síðustu ár allnokkra upphæð í tilvonandi kvótakaup.
Hann hringdi í þjónustufulltrúann sinn í bankanum og bað um bankaábyrgð út á innnistæðuna sína sem yrði þá fryst á meðan.
En þá fór allt í klessu.
Þjónustufulltrúinn upplýsti hann um það, að því miður yrði umsókn um bankaábyrgð vegna kvótatilboðs að leggjast fyrir "lánanefnd" sem starfaði í aðalbankanum í Rvík.
Til þess að hún tæki málið fyrir yrði að liggja fyrir úttekt á rekstri bóndans, hvað hann ætlaði að kaupa mikið magn og hversu hátt hann myndi bjóða í hvern lítra mjólkur.
Því miður skipti engu þó hann ætti inni fyrir kaupunum, svona væri kerfið.
Aðspurður sagði hann að bankinn tæki 1/2 % af upphæðinni í þóknun og hann hélt nokkra tölu um það, að sú upphæð myndi nú ekki duga fyrir kostnaði bankans við þetta umstang allt.
Síðan yrði bóndinn að leggja fram þinglýsingarvottorð (innan við 5 daga gamalt) til að sanna að hann hefði yfir lögbýli að ráða. Það myndi kosta nokkur þúsund.
Þegar bóndinn spurði dolfallinn hvers vegna kaupandi greiðslumarks sem ætti fyrir kaupunum þyrfti að sýna þinglýsingarvottorð til viðbótar við allt hitt ruglið benti bankamaðurinn honum á að spyrja Jón Bjarnason að því.
Þetta gerði hann þrátt fyrir að Jón hafi margsýnt það í sjónvarpsviðtölum að hann er snillingur í að svara ekki beinskeyttum spurningum.
Og bóndanum sem nokkrum mínútum áður hafði fundist það minnsta mál í heimi fyrir bankann hans að gefa bankaábyrgð út á innistæðu sem yrði fryst, meðan ábyrgðin stæði, féll nú allur ketill í eld.
Ekki bætti það ástandið ef bankamaðurinn sem þjónustaði trúlega alla kvótabjóðendur og kvótaseljendur á svæðinu, væri kominn með yfirsýn yfir bæði sölu og kauptilboð viðkomandi bænda. Eins gott að hann stæði undir þeirri ábyrgð.
Þar með þakkaði hann þjónustufulltrúanum samtalið og lagði á.
Hvað gera bændur svo spurði ég ?
Ætli ég taki bara ekki út 5 millurnar mínar fyrir næsta uppboð, fari með þær í plastpoka á Selfoss og biðji Sverri fyrir þær framyfir uppboðið.
Það væri fullkomnun fáránleikans.
Best að hafa þær í þúsundköllum bætti hann svo við.
Ég ætla svo að bíða með að vitna í samtal bóndans sem þurfti á bankaláni að halda til að gera kauptilboð í mjólkurkvóta.
En óneitanlega læðist sá grunur að mér að möppudýrin hafi algjörlega sleppt fram af sér beislinu þegar kvótauppboðsreglunum var snarað yfir á íslenskuna.
Og einhverra hluta vegna er hagsmunagæsla okkar bændanna afar hljóðlát um framkvæmdina??
04.12.2010 23:17
Drög að sauðburði !!
Nú styttist alltof hratt í það að lögð verði drög að sauðburði næsta vors.
Allt féð rúið og meira að segja ormalyfið komið ofanúr hillu og á réttan stað.
Það hefur nú ekki alltaf hafst af fyrir fengitíma.
Nú standa yfir mikil átök um hvenær hefja skuli sæðingar en sá " lati " gerir sér öðrum fremur grein fyrir því að ótímabær byrjun lengir óhjákvæmilega sauðburðinn í annan endann.
Það er búið að grófflokka ær sem eiga að fara undir djásnið hann Gnarr en talsverðar vonir eru bundnar við að hann geti orðið til bóta í ræktuninni.
Hann er nefnilega undan afbragðsgóðri á, sem er komin með 7.6 í afurðastig 3 vetra.
Það er hún 715 sem gekk með 2 gemlingsárið ( 33.5 kg alls) og verið þrílemd síðan( tvisvar).
Sá bíldótti ( sæðingur undan At.) á að notast á gimbrarnar en það eftirsóknarverða hlutskipti hreppir hann annarsvegar vegna litarins og hinsvegar og aðallega vegna þess að hann stigaðist ma. með 18.5 fyrir læri.
En það eru læraholdin sem eru sett á toppinn í ræktuninni í ár.
Svona leit sá bíldótti út í vor ásamt þáverandi eiganda en nú er hún búin að fara brask við ömmu sína og á engan Billa Boy lengur.
Stefnan er sem sagt sú að sæddar verði daglega allar ær sem ganga fram að fengitíma.
Upphafsdagsetningin er því það sem styrrinn stendur um og nú er Guðný búinn að taka til græjurnar svo illa horfir fyrir afturhaldsöflunum.
01.12.2010 23:52
Litlu skrípin á fullu og útrásin framundan.
Hann var fullur efasemda þegar ég setti hendina í hrúguna kom með hvolp og sagði honum hvaða bæjarnafn ætti að setja í sjúkrabókina. Honum fannst þeir allir eins.
Ég hafði ekki varað mig á því að þeir verða að vera orðnir 8 vikna fyrir pavrosprautuna svo hún bíður þar til 7. des. Í framhaldi af því gæti farið að koma los á einhverja þeirra.
Nú eru þeir alveg meiriháttar skemmtilegir og sem betur fer er tíðin góð svo þeir eru settir út tvisvar á dag a.m.k.
Hér eru þeir að leggja af stað út í veröldina í fyrsta sinn.

Litla daman fremst er sú sem á lengstu ferðina fyrir höndum á nýtt heimilið. Það er næstum þvert , eða svona á ská yfir landið. Þar bíða hennar krefjandi verkefni og ég hef fulla trú á því að hún muni standa sig, hvort sem hún lendir í kröppum dansi í Sauðdrápsbotni eða Fossdalshnútu.
Mamman var sett afsíðis en þeir fylgdu húsbóndanum hiklaust út.

Hér er það hinsvegar langamman hún Skessa sjálf að heilsa upp á ungviðið sem sýndi henni heldur óviðurkvæmilegan áhuga.
Þessar vikurnar er ágætt að hafa fullorðinn hund með þeim í uppeldislegum tilgangi og pabbinn og Dáð eru góð í það.

Hér sýnir Bangsi föður sínum hóflega virðingu.

Hér er það hinsvegar afastelpan sem leiðir þá um refilstigu lífsins.

Þessi hér er sérvalin sem einstaklega ferðaþjónustuvænt eintak.
Já þrælskemmtileg fyrirbrigði en það verður samt ákveðinn léttir, þegar sá síðasti verður kvaddur.
Fullt af hvolpamyndum . Smella HÉR.
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334