20.02.2018 20:01
Fósturtalningin og ræktunarmarkmiðin.
Eins og í fjárhundaræktuninni eru markmiðin skýr í sauðfjárrækt og þar er frjósemin alls ekki undanskilin.




Í fjárhundadæminu er ég að vísu allsráðandi en talsvert vantar uppá það í sauðfénu sem betur fer
.

En takmarkið í frjóseminni er semsagt að gemsarnir séu allir með einu en restin með tveimur.
Ekkert einlembu eða fleirlembukjaftæði í þeim markmiðum.
Það er hinsvegar einhvernveginn þannig með þessi ræktunarmarkmið að þar liggja vegir til allra átta og vandratað á þann rétta .


Bubbi kom semsagt að telja á dögunum. Það gekk fljótt og vel og niðurstaðan var þessi.

Oft verið verri og heildarmarkmiðið hjá þessu fullorðna nærri lagi en allt í klessu hjá gemlingiunum.

Þessi prímadonna fór í jólafrí til vina minna á Austurbakkanum til að auka líkurnar á einhverju skrautlegu.
Þrjú þar, svo ávöxtunin er góð á lausafénu þeim megin .
Og svei mér þá ef maður komst ekki aðeins í sauðburðarfíling þegar ég fletti framhjá þessari mynd í albúminu.

En lægðin sem nálgast okkur á ofurhraða þessa stundina
mun örugglega koma mér niður á jörðina hvað það varðar í fyrramáli.

Skrifað af svanur