01.02.2018 20:35
Að kenna flautuskipun.
Ég er búinn að fá 3 fyrirspurnir/spjall um flautuskipanir á nýbyrjuðu ári.
Sem er talsvert meira en á öllu síðasta ári
.

Ég er hættur að kenna söluhundum eða því sem ég tem fyrir aðra, skipanirnar nema sé sérstaklega beðið um það.
Fékk einhvernveginn á tilfinninguna að það nýttist ekki sem skyldi
.

Byrja svo ekki á flautunni fyrr en töluðu skipanirnar eru komnar vel á veg.
Eftir að ég fór að nota bendingar /táknmál allrafyrst í tamningunni er þetta hinsvegar mjög auðvelt og fljótlegt, þó þarna eins og í allri þjálfun sé það æfingin sem skapar meistarann.
Stjórna semsagt með bendingunum ásamt flautinu til að byrja með.
Fyrir þá sem eru að velta þessu fyrir sér set ég hér inn myndband af æfingu frá síðasta vetri.
Þarna er ég að æfa stopp, hægri og vinstri ásamt nær skipunum.
Á fulltömdum hundi sem stjórnað er með flauti er svo bætt við ýmsum blæbrigðum.
T.d. hægja á þeim niður í mismikinn hraða með misháu stoppflauti.s.frv.
Á myndbandinu er sýndur tími tvö í flautukennslu.
Nem. náði stoppflautinu og nær flautinu mjög fljótt sem gerist oftast.
Hinum skipununum var stjórnað með bendingum ásamt flautunni.
Og þó ég geri þetta svona og nota þessa tóna, þá er ekkert sem segir að aðrir geri þetta ekki öðruvísi og miklu betur
.

Gjörið þið svo vel. HÉR
Skrifað af svanur