29.11.2010 08:39
Enda býsna baukavænn/blessað gamalmennið.
Ég hef aldrei komist á alvöru " hagyrðingakvöld " og nú kom það til mín.

Helgi, Dagbjartur og Vigfús fóru á kostum og slógu algerlega í gegn.
Það mættu 3 snillingar ofan úr Borgarfjarðardölum og sýndu sitt rétta innræti því þeir höf'ðu greinilega ekki áttað sig á því að í afmælum á að hlaða oflofi á menn en ekki brjóta þá niður.
Og byrjuðu svona.
Helvíti er nú Halla klár
og hörkugóður svanni
að þrauka í yfir þrjátíu ár
með þessum líka manni.
Ég á svo eftir að fara betur yfir þetta og ákveða hvað er prenthæft.
Sýnist löngum sopakær
sæll með byggið fljótandi
endar daginn (sukkið) oftast nær
uppíloft og hrjótandi.
Hagmæltur og viskyvænn
vín og kvennagóður
en kollurinn er gegnumgrænn
og gamanmálafróður.
Sér til gamans brúkar blogg,
býsna mikið lesið
sem virkar alveg eins og Mogg-
inn á Snæfellsnesið.
Beint frá Býli.
Afkoman er ósköp næs
hjá öllum sem það stunda
selja beint frá býli gæs,
bygg og smalahunda.
Og aðeins var minnst á austurbakkann.
Heyrast bæði hróp og köll
harmakvein og grátur
Eltir sprækur upp á fjöll
Austurbakkaskjátur.
Og þessi sprengdi nú salinn.
Eins og refur reynslukænn,
rís og hækkar ennið,
enda býsna baukavænn
blessað gamalmennið.
dd
Öddi mætti oftar en einu sinni á svið. Hér tekur hann Binnavísur ( Svínárnesvísur) með miklum tilþrifum en sá vísnabálkur er í miklum metum hjá undirrituðum.
Og þessar áttu m.a. ágætlega við þessa kvöldstund.
Mikið lét nú lífið okkur litlu kvíða.
Meðan kyrrlát kvöldsins blíða,
klappaði vanga Rauðárhlíða.
Hjartað fullt af fjörsins yndi finn ég tifa.
Það er sem ég segi og skrifa,
svona dag er gott að lifa.
b.j.
Og veislustjórinn hann Þórólfur var í essinu sínu, kominn á fornar slóðir.
Hér er hann örugglega að segja sögu sem ekki er látin gjalda sannleikans.
Austan frá Selfossi var sjálfur Ingi Heiðmar mættur og söng ræðuna sína af mikilli snilld.
Þar lýsti hann miklum mannkostum afmælisbarnsins sem komu ábyggilega mörgum veislugesta á óvart.
Þakið á húsinu gekk svo í bylgjum þegar hagyrðingunum tókst alveg sérstaklega kvikindislega upp.
Trúlega þessi verið að koma í loftið.
Fýkur nú í flest mín skjól,
fallið sérhvert vígi.
ef ég segi um hann hól,
er það bara lýgi.
dd
Göslarinn, Keli Langaholtsvert og Mummi refabani, sungu og kváðu að hætti alvöru sveitamanna.
Og þessir enduvöktu gömlu góðu gangnaskálastemminguna.
Nóttin vart mun verða löng .
Vex oss hjartastyrkur.
Inni er bjart við yl og söng.
Úti er svartamyrkur.
Stjáni pípari, Sveinn Blönduósi, Þórólfur,og Öddi náðu vel saman þó þeir kæmu sitt úr hverri áttinni.
Yngri dóttirin söng m.a. uppáhaldslag/ljóð gamla mannsins, Rósin.
Undir háu hamrabelti
höfði drúpir lítil rós,
þráir lífsins vængjavíddir
vorsins yl og sólarljós.
Ég held ég skynji hug þinn allan,
hjartasláttinn, rósin mín,
er kristalstærir daggardropar
drjúpa milt á blöðin þín.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður, kyssa blómið,
hversu dýrðlegt fannst mér það.
Finna hjá mér ást og unað,
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist
aldrei það er minning þín.
Guðmundur Halldórsson
Þá lá nú við að hann gréti.
Og Steinka sem var algjör primus motor og allt í öllu þetta kvöld, spilaði undir.
Það var svo afastelpan sem setti lokapunktinn á kvöldið.
Ég ætla að syngja allt sem ég kann fyrir hann afa sagði hún á leiðinni á svið og kunni greinilega vel við sig þar. Fábært hjá henni.
Þessi sáu um allt sem viðkom frábærum mat. Hafþór meistarakokkur og Súkkatmaður , Rúna og Keli
( m. pípuhattinn) í Langaholti.
Takk fyrir mig.