23.08.2010 19:40
Súrefnið á fleygiferð og fölnar hlíðin.
Þeir sveitungar og sýslungar mínir sem voru farnir að trúa því að bongóblíður sumarsins væru eitthvað varanlegt ástand eru nú búnir að ná jarðsambandi á nýjan leik.
Norðaustan áttin sem er búin að hamast á okkur linnulaust í viku ásamt tilheyrandi kólnun hefur enn og aftur sýnt okkur rækilega að eftir sumar kemur haust.

Og kindurnar sem hópast niður í fölnandi hlíðina, úr sveljandanum innfrá eru líka ótvírætt vitni um þennan raunveruleika.

Akrarnir í Hrossholti eru farnir að gulna og ef allt næst af þeim í fyllingu tímans skila þeir Einari byggbónda, toppuppskeru eins og aðrir byggakrar í Eyjarhreppnum.
Þó bændurnir haggist ekki og verði einungis léttara um andardráttinn í 15 + metrum er trjágróðrinum enn eðlislægt að bogna undan þessari aðalóvinaátt sinni.
En Eldborgin haggast ekki frekar en hinir vinir mínir á Austurbakkanum.
Já, bráðum kemur hrímkalt haust.

Skrifað af svanur