Færslur: 2015 Mars

13.03.2015 21:05

Drauma eða ekki draumahundur ?

 Hann verður nú frekar seintaminn þessi hundur, sagði ég varfærnislega.

 Verður ekki gerður klár í alvörusmal á 3 - 4 vikum bætti ég við. 

 Hundeigandinn hafði hringt til að taka stöðuna eftir viku tamningu. 

Ég hafði farið yfir hlutina eins og ég sá þá .

  Áhuginn slarkfær en mætti vera meiri,kannski mikið meiri , ekki öruggur í að fara fyrir ,  frekar þröngur heldur en hitt og heyrnin og skilningurinn hefðu pirrað mig verulega fyrir nokkrum árum. emoticon 

Væri orðinn umburðarlyndari núna.  

Og ég hefði ekki hugmynd um hversu ákveðinn hann yrði.

 Jaa það ætti að vera hægt að gera hann þannig að yrði gagn að honum en ég héldi nú samt að hann yrði  ekki draumahundur neins. 

 Eigandinn sem hafði átt góðan hund fyrir margt löngu spurði mig hvort þyrfti þá að kenna honum t.d. að fara fyrir og sækja  Hvort það yrði þá eitthvað sem virkaði þegar kæmi út á mörkina ? 

Já, það lægi dálitil vinna í því að reyna að festa hann vel í  að fara fyrir og skilja ekki eftir. 
Jú og reynslan segði mér það, að  svona hundar sem ekki kæmu með þessa eiginleika greypta í hausinn úr ræktuninni, gætu svikið mann þegar færi að líða á smaladaginn eða maður freistaðist til að senda þá of langt út.

 
 Þessi klikkaði aldrei á því, á löngum og stormasömum ferli að fara fyrir og koma öllu til skila.

 En sumir næðu þessu þó alveg og ef bætti í áhugann þá lagaðist stundum margt.



Náunginn spurði mig þá hvað ég myndi gera ef ég ætti hundinn ?

 ( Ótrúlega margir sem spyrja mig aðþessu þegar ég hæli hundunum þeirra ekki nóg  emoticon )

 Enda var svarið hefðbundið. 

 Ég myndi ekki temja þennan hund fyrir sjálfan mig en ítrekaði það að hann gæti alveg orðið til nokkurs gagns ef ekki væri betra í boði.

   Eftir að hafa spáð í þetta fram og til baka var niðurstaðan sú að taka stöðuna eftir viku.

 Þá var stoppað og eigandinn tók við tamningunni. Því miður gekk það svo eftir að þetta hreinræktaða snilldarefni varð aldrei draumahundur neins.

 En til nokkurs gagns samt emoticon

09.03.2015 19:43

Boðberi vondra tíðinda


 Er hann þá ekki hreinræktaður spurði pilturinn með ósviknum spurnarhreim í röddinni ? 

 Jaaa sagði ég, hann getur alveg verið hreinræktaður en ekki til að sækja kindur eða halda saman hóp eins og flestir BC eru ræktaðir til. 

 Það væri einfaldlega þannig að í tímans rás hefðu ýmsir sveigt útúr þessari ekta fjárhundaræktun, með allskonar ræktunarlínum sem gerðu hundana eigendavænni fyrir þá sem ekki ráða við að temja alvöru ræktunardýr. 

 Þetta eru kannski rólegar og meðfærilegri týpur en eru ekki að gera  nema brot af því sem góðir hundar geta. 

Og nú var ég kominn með hálfgerðan fyrirlestrartón í röddina.

  Ég hafði nokkrum dögum áður tekið hund frá piltinum til að koma honum aðeins af stað í tamningunni fyrir hann.

  Hundurinn átti að vera undan góðum fjárhundum og að sjálfsögðu hreinræktaður.


 Þetta var rólegur og meðfærilegur hundur frekar áhugalítill, en var alveg til í að reka féð og hikaði ekkert við að bofsa og gelta svona til að koma þeim á hreyfingu.  

 Hafði enga takta til að fara fyrir þær eða halda þeim saman. Hann er ekki nema eins og hálfs árs sagði pilturinn, getur hann ekki lagast eitthvað?

  Nei sagði ég , og bætti svo við það yrði .þá algjört kraftaverk, en þau geta svosem alltaf gerst. emoticon

 Reyndar hafði ég kynnt mér bakland hundsins í millitíðinni, fannst það ekki gæfulegt en taldi rétt fara ekki  nánar út í þá sálma emoticon .

  Ég benti svo á að trúlega gæti hundurinn orðið ágætis rekstrahundur. Áhuginn gæti aukist eitthvað við notkun og mér sýndist hann myndi verða ágætlega ákveðinn. 

Pilturinn sagðist þá vilja koma sér upp góðum alhliða fjárhundi og vildi ekki eiga nema einn hund. 

Það sló á þögn í símanum við þessa yfirlýsingu.

  Þetta var hinsvegar  ekki í fyrsta sinn og því miður ekki það síðasta sem ég gerðist boðberi vondra tíðinda í málaflokknum. emoticon

  Sagði piltinum því, að ef hann væri ákveðinn í þessu, myndi ég ráðleggja honum að verða sér úti um " alvöru " velættaðan hvolp. 
 Þennan gæti hann átt áfram og notað hann við rekstur og ýmislegt heimasnatt þar til hinn kæmist upp. Hann yrði nokkurn veginn sjálftaminn til þess. 

  Svo vel vildi til að ég vissi af velættuðu goti og vegna þess hvernig málið var vaxið tók ég sénsinn á að benda honum á það.

 Náttúrulega með hefðbundnum fyrirvörum um að ekkert væri öruggt í málinu.

 Mér líður ennþá svolítið vel inni í mér eftir að pilturinn hringdi í mig fyrir nokkrum dögum. 

 Var kominn vel áleiðis í að temja hvolpinn sem ég benti honum á og var uppi í skýjunum af ánægju. emoticon


06.03.2015 12:42

Flugarr frá Dalsmynni tekinn út eftir 6 vikna tamningu.

 Það  hefur verið unnið í fjórum trippum á tamningaraldri fyrir mig í vetur en það yngsta af hrossaeigninni eru tvö á fjórða vetri. Ákvað að hætta þessu ræktunarbrölti  en það er spurning hvernig gengur að standa við það. emoticon 

Í morgun var það fyrsta tekið út eftir 6 vikna tamningu. Flugarr frá Dalsmynni undan Fjólu frá Árbæ og Fláka frá Blesastöðum.
 
 Örstutt myndbrot.  Hér

Hæstánægður með stöðuna á honum og enn kátari með umsögnina sem fylgdi honum.



 Nú fer Flugarr í ótímasett frí og ég læt mig hlakka til að sjá árangurinn hjá hinum þegar þeirra áfanga lýkur.
Flettingar í dag: 202
Gestir í dag: 19
Flettingar í gær: 363
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 412932
Samtals gestir: 37049
Tölur uppfærðar: 16.4.2024 15:53:18
clockhere