Færslur: 2010 Febrúar

06.02.2010 23:21

Átök í eftirleit.- Þó ekki í Tálknanum.


Það var eins og hundarnir fyndu það á sér að nú væri eitthvað spennandi framundan þegar ég hleypti þeim út úr bílnum.

 Þar sem vestfirðingar fengu loksins vinnufrið til að hreinsa Tálknann og voru búnir að því, var rétt að loka málum í Hafursfellinu.


  Vaskur og Snilld voru spennt og óþreyjufull fyrir því sem í vændum var.

 Í þetta sinn voru bæði Vaskur og Snilld með í för þó viðfangsefnið væri aðeins eitt lamb.

Það var orðið eitt eftir í Hafursfellinu og var ákaflega vart um sig. Ýmist upp í klettum í Geldingardalnum eða það kom niður í hlíðina þar sem það var uppundir eða í klettunum.

 Vaskur var með, því hann er mikill reynslubanki og algjörlega ómissandi að eiga við kindur í svona tilvikum.

 Þar sem við félagarnir erum hinsvegar farnir að linast nokkuð í  háu gírunum þá var Snilld tekin með, því gert var ráð fyrir mikilli hlaupagetu hjá lambinu sem ég hafði grun um að væri alveg dýrvitlaust.

 Við létum fara lítið fyrir okkur til að komast á milli lambsins og klettabeltis rétt austan við það.

Hundarnir skildu vel alvarleika málsins því það dugði rétt að ussa  svo þeir héldu sig fast fyrir aftan mig.


Það er í svona dæmum sem maður gefur lítið fyrir mikla fjarlægð í úthlaupi. Kind sem virðir hundinn ekkert og stoppar helst ekki nema eftir átök.

Viðbrögðin voru snögg og kraftmikil eins og ég bjóst við. Hér er lambið komið á fulla ferð vestur skriðuna og Snilld er rétt aftan við það að komast framúr. Vaskur er kominn á mikinn skrið rétt hægramegin við myndina þar sem hann var settur í vörnina.


Vaskur fjær sallarólegur í bið eftir nánari fyrirmælum. Snilld á ýmislegt ólært í þessum fræðum.

 Hér hefði maður haldið að allt væri komið í höfn en þetta var rétt að byrja. Það var greinilegt að hrússi litli leit á manninn sem óvin númer eitt. Til marks um baráttuviljann fór hann á fulla ferð upp skriðuna úr þessarri stöðu hér.

 En enginn má við margnum og niður fór hann. Hann var greinilega með klettana austan við okkur sem B leið og það kostaði átök fyrir hundana að koma honum niður hlíðina framhjá þeim klettum sem í boði voru.



 Hér er þetta loksins komið undir kontrol og slagnum að ljúka. Snilld og Vaskur vakta ólátabelginn meðan" aðalsmalinn " kemur móður og másandi.



 Og Þverárbændur tóku ennþá á móti kindum ekki síst gömlum kunningja eins og þessum.

Og nú held ég að Hafursfellið sé loksins orðið fjárlaust.emoticon


 

03.02.2010 22:19

Hrossaræktin og hugarvílið.


 Ég var að velta því fyrir mér í dag, hversu áhyggjulaust lífið var áður en ég ákvað að fara að fikta við hrossarækt á gamals aldri.

 Það eru svona 5 ár síðan. 

 Í ræktunina skyldi notuð miðaldra hryssa sem hafði verið tamin og notuð til reiðar eftir þörfum, en hafði reyndar verið frekar verklítil í nokkur ár eins og altítt er með hross á Íslandi.

Bæði tamin og ótamin.

 Ég lagði nú ekki miklar pælingar í stóðhest handa hryssunni heldur hringdi í vin minn norður á Blönduósi og spurði hvort ég kæmist ekki að með hryssuna undir stóðhestinn hans.


 Funi Parkersson kom út úr því. Hann er á fjórða vetur og gaman að vita hvað verður úr honum.

 Næsti stóðhestur var líka fljótvalinn því ég hafði verið að temja tík fyrir vin minn norður í Skagafirði
og reynslan hefur kennt mér það að ég mun aldrei verða ríkur á hundatamningum.

 Þessvegna hélt ég hryssunni minni undir stóðhestinn  á þeim bæ.



 Taktur Hágangsson kom út úr því. (Sá aftari.)

 Nú fór ég að átta mig á því að hér dugði ekkert kæruleysi og strax uppúr áramótum 2007/8 hófust miklar pælingar og stóðhestagrúsk.

Þar sem hryssan er alhliða kom ekkert til greina nema öflugir fjórgangshestar með mikinn vilja og rými. Þegar þeir fundust þurfti að skoða baklandið. Það háði mér náttúrulega talsvert í þessu að ég hef ekkert vit á hrossum og hef þar að auki ekkert fylgst með hrossarækt í þó nokkra áratugi.



 Dökkvi Eldjárnsson kom  í heiminn í framhaldi af þeim pælingum.

 Til að auka enn á vandamálin  var ákveðið að koma upp stóðhestagirðingu á bænum síðastliðið sumar í samstarfi við hestamiðstöðina.
Þar yrði undaneldisgripurinn að sjálfsögðu að mæta með sínar níur fyrir tölt brokk geðslag og fegurð í reið.



 Það var síðan Sigur frá Hólabaki sem fékk heiðurinn af að vígja girðinguna.

 Og nú eru pælingarnar fyrir sumarið í algleymingi og legið yfir myndböndum, dómum og ættfræði.

Í þetta sinn á  helst að nota fimmgangshest en þó linan í vekurðinni því níurnar eiga helst að sjást í alvöru gangtegundunum. Það er verið að raða upp listanum og viðræður hafnar.

 Hryssan sem ég á þriðjungs hlut í og komið að mér að setja undir hest, er svo alveg eftir, meðeigendum mínum til mikillar hneykslunar.

Ég er nefnilega karlmaður og get bara gert eitt í einu.emoticon 

Og afskaplega glaður yfir því að eiga ekki svona 10 ræktunarhryssur.emoticon

 

01.02.2010 23:39

Laugargerðisskóli. Samið um reksturinn.

 Það hefur gengið upp og ofan að berja saman saminginn um rekstur  grunnskólans í Laugargerði.

 Ef það er mælikvarði á gæði samnings að báðir samningsaðilar séu óánægðir, verður þetta trúlega að teljast nokkuð góður samningur sem undirritaður var í Laugargerði í dag.


Eggert Kjartans oddviti Eyja og Miklaholtshrepps og Páll Brynjarsson bæjarstjóri Borgarbyggðar
undirrita samninginn í Laugargerði í dag.

Eyja- og Miklaholtshreppur tekur að sér samkvæmt þessum samningi að annast menntun grunnskólanema úr gamla Kolbeinsstaðarhreppnum í Borgarbyggð með samsvarandi hætti og hingað til hefur tíðkast í samstarfi sveitarfélaganna á vegum byggðarsamlags um Laugargerðisskóla.


 Þá hafa börn úr Kolbeinsstaðarhrepp aðgang að leikskóladeildinni í Laugargerði eins og verið hefur.

 Hvort sveitarfélag fyrir sig sér um akstur nemenda úr sínu sveitarfélagi og Borgarbyggð ber kostnað vegna sérkennslu og annarrar sérþjónustu sinna nemenda.


                                         Samningurinn  handsalaður.

 Samningurinn er aðeins til 5 ára með endurskoðunarákvæði eftir 3 ár sem er ekki gott miðað við um hvaða málaflokk er að ræða. Menntun grunnskólanemenda er fjöregg sem sveitastjórnarmenn ættu ekki að henda milli sín á hlaupum.

 Þessi samningur þýðir verulega aukin útgjöld fyrir Eyja og Miklaholtshrepp og mun eflaust þýða nokkra uppstokkun á rekstri skólans og sveitarfélagsins næstu árin.

 Vegna þessa er ólokið vinnu við rekstaráætlun yfirstandandi skólaárs og verður drifið í að ljúka því.


Bæjarstjóri Borgarbyggðar ásamt fráfarandi fulltrúum í rekstrarnefnd þeim Jónasi á Jörfa. Ásbirni í Haukatungu og minnihlutamanninum honum Finnboga Rögnvalds. Þeirra verður allra sárt saknað á vesturbakkanum. Reikningshaldari skólans , Sigrún á Hlíð t.h.

 Sveitarstjórn Eyja og Miklaholtshrepps mun taka yfir störf rekstrarnefndar skólans til að byrja með.

Þar mun fulltrúi Borgarbyggðar eiga sæti með málfrelsi og tillögurétt og fulltrúar kennara og foreldra sitja fundi með sama hætti og í fræðslunefnd áður.

Segið svo að kreppan komi ekkert við okkur í sveitinni.


 

Flettingar í dag: 164
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 1473
Gestir í gær: 142
Samtals flettingar: 403378
Samtals gestir: 36650
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 09:38:37
clockhere