Færslur: 2009 Desember

26.12.2009 23:31

Dugleg að lesa um jólin.- engar myndir.

 Þó maður sé mættur í fjósið alla morgna kl.6.30 eru jólin samt tími mikillar slökunar og værukærðar.

 Allavega hjá þeim sem eru eingöngu í því að njóta veislufanganna sem verða til um jólin.

 Eg er nú reyndar ákaflega lítill jólamaður í mér og í endurminningunni er ljósi punktur jólanna allar bækurnar sem komu í gjafapökkunum til heimilismanna en þær voru allar lesnar næstu dagana.

 Nú eru breyttir tímar og trúlega eru þetta fyrstu jólin mín sem ekki kemur ný bók uppúr pökkum heimilismanna. Enn þá eitthvað 2007 í gangi eða hvað?

 Stærsta jólagjöfin í ár var að hafa öll ( eða þannig) börn og barnabörn hjá sér á aðfangadagskvöld en það væri daufleg pakkaopnun að hafa ekki börn við hendina til að útbýta pökkum og aðstoða við opnun þeirra. Kolbrún Katla var góð í því og Aron Sölvi bráðefnilegur.

 Jólamessan var svo í dag.

 Til að létta á kirkjukór, presti og fleirum var það ákveðið í fyrra að hafa jólamessuna sitt árið í hvorri kirkju, Fáskrúðarbakka og Kolbeinstaðarkirkju.

 Messað var í  Fáskrúðarbakkakirkju í fyrra og  Kolbeinstaðarkirkju í ár.

 Það var bara gaman að lenda í messu hjá vinum mínum á Austurbakkanum og meira að segja þó nokkrir mættir í jólamessuna  af báðum bökkum..

 Mér hafði reyndar verið sagt að vinir mínir á Austurbakkanum væru nú ekki með þeim allra kirkjuræknustu og mætingin í dag hefði nú verið nokkur hundruð % meiri en undanfarið, ég legg náttúrulega engan dóm á slíkar sögusagnir.

 Hitt sýndist mér, að þeir sem ekki mættu, hefðu nú trúlega haft síst minni þörf á  því að koma, hlusta á guðs orð og varðveita það.  ( Bara svona hlutlaust vinalegt álit undirritaðs.)

 Já þetta lítur bara vel út og verið að bóka kaffi og matarboð, hægri, vinstri.

Nú verður að safna smá forða til mögru áranna 7 sem í hönd fara.

 Já, það er bara boðið uppá myndalaust blogg núna því allir eiga að vera duglegir að lesa um jólin.

23.12.2009 21:33

JÓLAKVEÐJA.


      Lesendur síðunnar  nær og fjær fá bestu óskir 
       um gleðileg jól og farsælt komandi ár.

      Sérstakar þakkir til þeirra sem hafa komið við  með  kommenti
       eða stimplað sig inn í gestabók
.
 

22.12.2009 23:52

Bráðum kemur betri tíð með !!!!!

 Þegar daginn tekur að lengja hefur árið náð botninum hjá mér og þá fer að léttast á mér brúnin.

 Þessi árhringur með endalausum, margbreytilegum útfærslum í lífsbaráttunni er misjafnlega skemmtilegur en þegar er bjart allan sólarhringinn, þá er minn tími kominn.



Ekki svo langt í að þessi fiðurfénaður eða afkomendurnir mæti á tjörnina hjá mér.




 Og einu sinni leit Funi minn svona út. Kannski eignast hann hálfsystur eða bróður  í vor ef guð lofar .



 Hér hefur einhverntímann gengið mikið á í jarðsögunni en refagrenin 4 sem vitað er um á þessu svæði hafa ekki verið í ábúð í minni grenjavinnslutíð.



 Hér hafa líka einhverntímann verið umbrot hjá móður náttúru og ekki hægt að kvarta undan útsýninu þegar hér er legið á greni sem er vinsælt til búsetu. Það er alltaf gaman að horfa yfir (niður) á Austurbakkann þó útsýnið sé nú margfalt skemmtilegra af honum þegar Vesturbakkinn blasir við..



 Og svona lítur Hesturinn út í vetrarhárunum, Skógarstrandamegin.

 

 Já, dálítið erfitt fyrir sólin að skína á okkur þessar vikurnar en bráðum kemur betri tíð með blóm í haga.

 Svo er bara að hlusta og/eða horfa ekki á fréttirnar og leiða svartnættisbloggarana hjá sér eitthvað fram á nýja árið.emoticon

Flettingar í dag: 169
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 913
Gestir í gær: 95
Samtals flettingar: 414730
Samtals gestir: 37291
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 11:09:38
clockhere