Færslur: 2008 Ágúst

05.08.2008 21:39

Túristadagurinn


  Þar sem allir afkomendurnir voru staddir heima um helgina var ákveðið að leika túrista einn dag og fara kringum Jökul.


   Rauðfeldsgjá. Afastelpan var hin ánægðasta með reiðskjótann en trúlega munu kröfurnar um betri fótaburð og meiri vilja, koma fyrr en varir.

  
Fyrsti stoppistaðurinn var Rauðfeldargjá. Það var slæmur dagur hjá bræðrunum Rauðfeldi og Sölva þegar þeir tóku sig til og settu Helgu Bárðardóttir út á ísjaka og ýttu frá landi. Jakann rak til hafs. Bárður (síðar Snæfellsás ) elti þá bræður uppi , varpaði Rauðfeldi í gjána en  Sölvi hljóp fram af hömrum .(Sölvahamar).

 Eru þetta hugsanlega fyrstu heimildir um einelti og hvernig brugðist var við þeim.

Helga og ísjakinn tóku hinsvegar land á Grænlandi eftir nokkra siglingu án þess að verða ísbjarna vör, enda kom mun hún hvorki hafa komið við á Hornströndum eða í Skagafirði.







 Afastelpan komst svo á voða skrítið trampólín á Arnarstapa hjá Haddý og Geira sem eru að koma sér upp aðstöðu í ferðaþjónustunni.




 Að sjálfsögðu var komið við í Fjöruhúsinu á Hellnum og fengið sér ýmiskonar góðgæti.


      Reynt við hálfsterkan ( 100 kg.) Hvort skyldi hann nú hafa farið upp eða niður úr þessar stöðu?

Á Djúpalónssandi reyndu menn krafta sína eftir að aldursforsetinn í hópnum var búinn að lýsa fjálglega hversu léttilega hann hefði farið með þessar steinvölur fyrir svona 30 árum.

 Já það var gífurleg ferðamannatraffík á Nesinu á laugardaginn

04.08.2008 11:37

Vegagerð.




  Það lengist sífellt vegakerfið á búinu eftir því sem ökrunum fjölgar og bætist við ræktunina. Þar sem grafan mun væntanlega yfirgefa svæðið fljótlega og hverfa á vit eiganda síns var drifið í að bera ofaní milli heyanna í sl. viku.

  Reyndar er allt þurrt og fínt núna í þessum endalausum þurrkum en það mun örugglega rigna á ný.




  Já nú er bara að vanda sig.

02.08.2008 22:36

Border Collie ræktunin.




   Það er mikil breidd í ræktuninni á B. C. Menn geta fundið  þá  litla eða stóra, loðna eða snögghærða , meinlausa eða grimma. lina eða ákveðna. æsta eða rólega,o.sv .frv.
 Litaúrvalið er líka verulega fjölbreytt.  Ég fæ stundum á tilfinninguna þegar ég er að fást við hund þar sem ég þekki vel foreldrana,  að hann hljóti að vera eins og einhver forfaðirinn/móðirin þegar hitt og þetta kemur í ljós sem ég þekki ekki hjá foreldrunum.

 Mér finnst það t.d. umhugsunarefni þegar einn hvolpur af níu er bláeygur eins og langafinn, Bláskjár frá Hæl. Vonandi hefur hann eitthvað meira frá langafanum.



 Hérna er hann strax kominn í smalastellingarnar hans langafa.

 

 

 

 

 

Flettingar í dag: 355
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 2103
Gestir í gær: 503
Samtals flettingar: 417474
Samtals gestir: 37869
Tölur uppfærðar: 23.4.2024 15:27:55
clockhere